Sunday, 24 July 2011

Langar að prófa þessa hugmynd

Í þetta verkefni þarf tvær dollur, eina til að geyma nöfn nemenda og eina sem er leyndó dósin. Kennarinn tekur eitt nafn úr fyrri dósinni að morgni og setur í leyndó dósina, síðan segir hún nemendum að hún muni fylgjast vel með nemandanum sem fór í leyndó dósina og ef hann hlustar vel og vinnur allan daginn fái hann verðlaun í lok dagsins.

No comments: