Ég er búin að velta því svo mikið fyrir mér hvernig maður getur geymt word skjöl og þess háttar á netinu þannig að maður geti deilt með sér góðum hugmyndum. Mér finnst nefnilega óþarfi að allir séu að finna upp hjólið hver í sínu horni.
Hér er prufa en ég notaði Google docs, sem virðist fylgja með ef maður er með gmail póst. Þetta skjal ætla ég að prenta á efni og sauma poka undir spilastokka sem nemendur geta fengið lánaða bæði til að leika sér og til að vinna stærðfræðiverkefni.
No comments:
Post a Comment