Wednesday, 27 July 2011

Spilapokar og fleira

Ég prentaði spilapokana á efni núna áðan. Til að efnið komist áfallalaust í gegnum venjulegan bleksprautuprentara þarf að strauja pappír á bakhliðina, Ég nota Reynold´s Freezer Paper sem ég fékk frá Ameríku fyrir nokkrum árum en mér skilst að þessi pappír fáist í Virku í Mörkinni. Pappírinn er vaxhúðaður öðrum megin og þegar vaxhliðin er straujuð á efnið, stífast það nógu mikið til að komast í gegnum prentarann.
Pappírinn er svo bara rifinn frá eftir prentun og engar leifar af vaxinu eru sjáanlegar.
Ég ákvað að sauma seinna settið af grjónapokunum sem ég var búin að gera fyrir nokkru. Núna passaði ég að hafa opið stærra og því var mun auðveldara að setja grjónin í.
Tvö sett af grjónapokum tilbúin og fimm ónúmeraðir pokar að auki, sem ég hef ekki alveg ákveðið hvað ég geri við.
Þá eru það spilapokarnir, ég byrjaði á því að falda efri brúnina, fyrst einn sm inn og síðan svona rúmlega tveir sm. Það er alltaf auðveldast að nota straujárn til að búa til brotbrúnina, þá verður allt svo slétt og fellt. Þar sem örkin er A4 þurfti aðeins að minnka þetta svo einn spilabunki passaði í. Þetta voru nú engin geimvísindi, bara nokkurn veginn þannig að passaði.
Þrír spilapokar næstum tilbúnir, ætla að blikka bestu systur og biðja hana að hjálpa mér að setja plastsmellur til að loka pokunum. Ég sá svo sniðugan leik með spilum á Pinterest í gær sem ég þarf að gera. En hann er kannski fyrir yngri börn, t.d. fyrsta eða annan bekk.

2 comments:

Guðný said...

smellurnar eru tilbúnar fyrir þig til að nota þegar þú vilt. Allt settið er í stofunni minni í skólanum. Allir litir eru í boði.

kveðja
Guðný

Anonymous said...

Til hamingju með þetta stórkostlegu framkvæmd. Þessi síða er þegar komin í bloggrúntinn minn.
Knúsar úr neðri byggð ;)