Þessa hugmynd fékk ég á pinterest og ætla að nota til að brjóta upp stærðfræðikennsluna í vetur. Hugmyndin er að gera tvö sett og ég held að það sé hæfilegt að hafa 4 nemendur í hóp. Leikirnir sem hægt er að leika með þessum grjónapokum geta verið margvíslegir en ÓH hefur fundið upp á nokkrum. Sennilega verður þetta mest margföldun, t.d. að reyna að hitta á pappadiska sem merktir eru með númerum og síðan á að margfalda töluna á pokanum við töluna á disknum og safna saman stigum, en þá kemur samlagning inn í þetta líka.
Stafirnir voru settir á efnið með venjulegum bleksprautuprentara. Ég straujaði "Freezer paper" aftan á efnið sem ég ætlaði að nota (fæst t.d. í Virku), útbjó tölustafina í word (tveir stafir á hverju A4 blaði) og prentaði. Síðan saumaði ég marglitt efni á bakhliðina og setti um 1 dl af hrísgrjónum í hvern poka.

No comments:
Post a Comment