Monday, 3 October 2011
Turnafjör í notkun
Ég prófaði að nota turnafjörið í vikunni. Þetta er margföldunarleikur sem ég bjó til í sumar eftir fyrirmynd frá Pinterst. Ég á fjórar Pringles dollur með 30 bollum í hverri og er búin að skrifa margföldunardæmi á botninn á hverri og einni. Bekkurinn minn er auðvitað bara að byrja í fjórða bekk og því ekki orðinn mjög leikinn í margföldun. Ég á því örugglega eftir að nota þennan leik meira seinna í vetur þegar allir eiga að vera búnir að læra töflurnar utan að. Ég leyfði stelpunum bara að vera með litlar margföldunartöflur til að kíkja á svarið ef þær lentu í erfiðleikum.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment